Félagar í aðildarfélögum BSRB munu greiða atkvæði um verkfallsboðun þann 17. febrúar næstkomandi. Samþykki félagsmenn verkfallsboðunina munu víðtækar aðgerðir allt að 18 þúsund opinberra starfsmanna hefjast þann 9. mars næstkomandi og munu þær standa þar til samningar hafa náðst. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar fimmtudaginn 20. febrúar.
Fjölbreyttir hópar starfsmanna hins opinbera munu taka þátt í verkfallsaðgerðunum, verði þær samþykktar í atkvæðagreiðslu. Sem dæmi má nefna að starfsfólk á Landspítalanum og í annarri heilbrigðisþjónustu, í velferðarþjónustunni, skólum, leikskólum og frístundaheimilum munu öll leggja niður störf. Einnig munu starfsmenn í sundlaugum og íþróttahúsum, ásamt starfsfólki sem sinnir þjónustu við aldraða og fólk með fötlun.
Boðaðar verkfallsaðgerðir verða tvískiptar. Annars vegar verða verkföll hjá þorra félagsmanna BSRB sem starfa hjá hinu opinbera, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg á ákveðnum dögum. Þær aðgerðir munu að óbreyttu lama stóran hluta almannaþjónustunnar þá daga sem aðgerðirnar standa yfir. Hins vegar verða ákveðnir hópar í ótímabundnu verkfalli frá og með 9. mars næstkomandi. Það verða meðal annars starfsmenn grunnskóla og frístundaheimila á nær öllu höfuðborgarsvæðinu auk Akraness, sem þýðir að frístundaheimilin verða lokuð frá þeim degi.
Ótímabundið allsherjarverkfall frá 15. apríl
Samkvæmt þeirri áætlun sem félagsmenn munu nú greiða atkvæði um munu þessar aðgerðir halda áfram samkvæmt áætlun fram í dymbilviku. Ótímabundið allsherjarverkfall allra félagsmanna hjá ríki, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg mun svo hefjast þann 15. apríl, takist samningar ekki fyrir þann tíma. Félagar í BSRB hafa verið kjarasamningslausir frá 1. apríl 2019. BSRB segir að kjarasamningsviðræður munu vera í gangi samhliða undirbúningi verkfallsaðgerða.
Félagsmenn í eftirtöldum félögum munu greiða atkvæði um verkfallsboðun:
▪ Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi
▪ Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
▪ FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu
▪ Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
▪ Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
▪ Sameyki – stéttarfélag í almannaþjónustu
▪ Sjúkraliðafélag Íslands
▪ Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu
▪ Starfsmannafélag Fjallabyggðar
▪ Starfsmannafélag Fjarðabyggðar
▪ Starfsmannafélag Garðabæjar
▪ Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
▪ Starfsmannafélag Húsavíkur
▪ Starfsmannafélag Kópavogs
▪ Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
▪ Starfsmannafélag Suðurnesja
▪ Starfsmannafélag Vestmannaeyja
Þrjú félög til viðbótar; Landssamband lögreglumanna, Tollvarðafélag Íslands og Félag starfsmanna stjórnarráðsins, hafa lýst yfir stuðningi við aðgerðirnar, en félagsmenn þeirra hafa ekki verkfallsrétt og munu félögin því ekki boða til sambærilegra aðgerða. Þá styðja fangaverðir, sem eru í Sameyki en hafa ekki verkfallsrétt, aðgerðirnar þó þeir verði að standa utan við þær.
Nærri 90 prósent vilja aðgerðir
Mikill hugur er sagður vera í félagsmönnum, en í nýlegri könnun sem Sameyki hefur látið gera hjá sínu fólki. Könnunin leiddi í ljós að nærri níu af hverjum tíu félagsmönnum styðja boðun verkfalls til að þrýsta á um gerð kjarasamninga.