Úlfar hakkar í sig kristján þór: peningalegur ölmusuþegi samherja – heilbrigðiskerfið morknaði á meðan hann svaf

„Ég er ekki í stjórnarandstöðu. En ég játa það, áður en langra er haldið, að ég hef lengi haft ímigust á stjórnmálaferli Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegsráðherra. Sá illi bifur jókst mjög þann tíma sem hann svaf í embætti heilbrigðisráðherra á sama tíma og heilbrigðiskerfið morknaði vegna viljandi vanrækslu hans.

Þetta segir rithöfundurinn Úlfar Þormóðsson í pistli á vef Herðubreiðar þar sem hann gagnrýnir Kristján Þór og Samherja harðlega sem og tengsl þeirra. Úlfar er virt skáld og þekktur fyrir beitta þjóðfélagsrýni. Hann vann sér það einnig til frægðar að vera eini maðurinn hér á landi sem hefur verið dæmdur fyrir guðlast. Í pistli sínum á herðubreið bendir Úlfar á að djúp vinátta sé á milli Kristjáns Þórs og Þorsteins Más Baldvinssonar eiganda Samherja. Þannig var eitt fyrsta verk þessa ráðherra Sjálfstæðismanna eftir að hafa horft á Kveik á RÚV, þar sem Samherji var sakað um spillingu af verstu sort, að hringja í Þorstein vin sinn og spyrja hvernig hann hefði það. Hafa margir furðað sig á þessu enda fór svo að gjörningur Kristjáns Þórs rataði í Áramótaskaupið, þar sem það sló í gegn.

Úlfar segir:

„Og hann minnkaði ekki ímigusturinn þegar hann, [Kristján Þór] fyrrverandi eitt og annað tengt stærsta útgerðarfélagi landsins og peningalegur ölmusuþegi þess, varð sjávarútvegsráðherra. Í báðum embættum hefur hann ávallt mætt gagnrýni með yfirlæti. Og gerir það enn, þessi þjónn okkar.“

Úlfar segir að á þeim tíma sem Kristján Þór hafi setið í stafni Sjávarútvegsráðuneytisins hafi það versta varðandi fagið fengið að malla og vaxa til verri vegar. En Kristján Þór láti gagnrýni sem vind um eyru þjóta. Úlfar segir:

„Gorgeirinn hefur kæft í honum þá siðsem sem ætla má að hver og einn fái í vöggugjöf. Þessu til sönnunar er þetta, tekið orðrétt upp úr visi.is rétt í þessu:

„Það er hins vegar uppi núna raddir í pólitíkinni sem eru allt annars eðlis og hafa í raun ekkert með stjórnsýsluna að gera heldur eru fyrst og fremst pólitík. Við heyrum það frá stjórnarandstöðunni til dæmis sem ræðir þetta af miklum móð, það er fyrst og fremst pólitík. Það er ekkert nýtt varðandi hæfi mitt tengdu Samherja frá árinu 2017 frá því ég gaf þess yfirlýsingu. Ég spyr hvar hafa þessar raddir verið allan þann tíma. Það er ekkert nýtt í málinu, ekki nokkur skapaður hlutur,“ sagði Kristján Þór.“

Þá segir Úlfar að lokum að ráðherra á Samherjastyrk ætli sér að sitja sem fastast:

Sum sagt. Samherji, stærsta útgerðarfélag landsins, helsti styrktaraðili ráðherrans, er bendlaður við alþjóðlegt svínarí. En ráðherrann á Samherjastyrk situr sem fastast sem yfirmaður sjávarútvegsins í landinu og segir í hofmóði:

„Það er ekkert nýtt í málinu, ekki nokkur skapaður hlutur!“

Hér má lesa pistil Úlfars í heild sinni.