Tyrkneskur hakkarahópur tekur ábyrgð á árásum á heimasíðu isavia

Tyrk­neski hakkarahópurinn Anka Neferler Tim hefur tilkynnt að þeir beri ábyrgð tölvu­árás­um á vefsíðu Isavia í dag, sam­kvæmt tyrk­neska fjöl­miðlin­um Yeni akit. Segir hakkarahópurinn að árásirnar séu vegna móttökunnar sem tyrkneska landsliðið fékk við komu sína til Íslands. 

Þetta kem­ur fram á vefsíðu tyrkneska fréttamiðilins Yeni akit en RÚV greindi fyrst frá ís­lenskra miðla. Sagt er í grein Yeni akit að leikmenn tyrkneska landsliðsins hafi þurft að bíða í um þrjár klukkustundir á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt Guðjóni Helgasyni, upplýsingafulltrúi Isavia, er það ekki rétt og tók það landsliðið um 80 mínútur að fara í gegnum vegabréfaskoðun og öryggisleit. 

Hópurinn hefur sagt í yfirlýsingu að þeir munu halda áfram árásum á vef Isavia og jafnvel fleiri íslenskar heimasíður vegna málsins.