Tyrkland

Tyrkir velja að breyta stjórnskipun Tyrklands. Bæði talsmenn úr flokki Erdogan forseta Tyrklands og forsetinn sjálfur segja að ekki sé eftir neinu að bíða.

Þegar verði hafist handa við að breyta stjórnskipun lýðveldisins Tyrklands til að hrinda í framkvæmd þeim breytingum sem kjósendur hafa veitt stjórnvöldum umboð til að gera.

Forsetaræði verður innleitt. Fréttaskýrendur í Tyrklandi eru ekki á einu máli um hvernig þetta verður gert og ekki eru þeir sammála um lögmæti boðaðra breytinga.

Úrslitin eru ótvíræð. Naumur meirhluti kjósenda vill að stjórnskipun landsins verði breytt. Þeir treysta Erdogan forseta og flokki hans til verksins. Erdogan forseti segir úrslit kosninganna vera sögulega ákvörðun. Andstæðingar forsetans véfengja úrslitin og krefjast endurtalningar.