Tyrkjasigur: ísland í 2. sæti riðilsins

Tyrkir lögðu íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu með einu marki gegn engu í Tyrklandi í gærkvöld eftir að hafa misst einn leikmanna sinna út af eftir fólskulegt brot á Jóni Daða Böðvarssyni seint í síðari hálfleik.

Íslenska liðið stóð sig vel í leiknum; allir leikmenn þess gáfu sig í leikinn og voru staðráðnir í að tapa honum ekki - og helst vinna, enda átti íslenska liðið nokkur færi sem hefðu getað gefið því mark.

Niðurstaða kvöldsins er sú að Ísland hafnar í öðru sæti riðilsins - og ekki þess auðveldasta í undankeppninni, en Tékkar tróna á toppi hans eftir 2:3 sigur á lánlausum Hollendingum á útivelli, þrátt fyrir að vera manni færri þriðjung leiksins.

Það merkir að Hollendingar sitja heima á meðan EM-lokakeppnin fer fram í Frakklandi.

Kasakkar unnu sinn fyrsta leik í keppninni eftir sigur á Lettum á útivelli, 0:1.

Íslendingar enduðu með 20 stig í öðru sæti riðilsins en Tékkar hrepptu 22 stig og höfðu sigur í riðlinum. Tyrkland kemst beint áfram á EM með besta árangur liða í þriðja sæti, en þeir fengu 18 stig í riðlinum.