Aðgerðasinninn Haukur Hilmarsson var skotinn til bana í átökum við tyrkneska herinn sem nú hefur lík hans undir höndum samkvæmt heimildum mbl.is frá Afrin-héraði.
Einn heimildarmanna mbl.is, Mohammed Hassan, Kúrdi og blaðamaður í Sýrlandi, sem hefur unnið í lausamennsku fyrir fjölda fjölmiðla eins og CNN og The Guardian, sóttist eftir því að fá staðfestar fregnir af andláti Hauks fyrir mbl.is. Komst mbl.is í samband við Hassan fyrir milligöngu Mið-Austurlandadeildar bandaríska fjölmiðilsins Washington Post.
Samkvæmt heimildum hans frá háttsettum félaga innan vopnaðra sveita Kúrda, YPG, lést Haukur í skotárás tyrkneska flughersins en ekki í sprengjuárás. Reyndu liðsmenn YPG að komast að líki hans en urðu að hörfa frá. Tveir arabískir YPG-bardagamenn létust einnig í skotárásinni. Lík Hauks er því enn í höndum tyrkneska hersins en til stendur í náinni framtíð að skipta á líkum tyrkneskra hermanna og YPG-bardagamanna, þ.á m. líki Hauks, samkvæmt heimildum Hassans, segir í frétt mbl.is.