Tyrkir ganga að kjörborðinu

Tyrkir ákveða í þjóðaratkvæðagreiðlsu á sunnudag hvort auka skuli framkvæmdavald forseta tyrkneska lýðveldisins. Kjósa skal um hvort gera skulu átján stjórnlagabreytingar. Verði þessar breytingar samþykktar fær forseti Tyrklands umtalsvert framkvæmdavald. Í gildi eru neyðalög í Tyrklandi og eru lögmenn og stjórnmálamenn efins um að hyggilegt sé að kjósa um stjórnskipunarbreyttingar við þessar aðstæður. Mjög mjótt er á milli þeirra sem vilja hrinda í framkvæmdum þessum breytingum og þeirra sem eru þeim andvígir segja nýjustu kannanir.