„Nafnlaus dólgur í aumkunarverðri tilraun til að skora stig hjá öðrum aumkunarverðum dólgum, mönnum sem finnst töff að taka Trump á lífið og tilveruna,“ skrifar Sólveig Anna Jónsdóttir á Facebook í dag.
Á hún þar við skrif Týs í Viðskiptablaðinu í dag og notkun hans á orðinu „Kínaplágan“ um kórónaveiruna.
„Týr í Viðskiptablaðinu að tala eins og xenófóbískur aumingi“ segir Sólveig áður en hún deilir mynd af pistli Týs en hann er svohljóðandi:
„Ekki getur Týr sagt það með góðri samvisku að sér komi það á óvart að sjá það í nýjasta aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar að frjálsir fjölmiðlar skuli verða settir á sveitina sem hluti af neyðarráðstöfunum vegna Kínaplágunnar. Það var eiginlega fjarska fyrirsjáanlegt.“