„týpísk karlrembukomment” – 21 á mánudag: staða ríkisstjórnar katrínar jakobsdóttur á nýju ári

Tvö ár eru síðan ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur var mynduð en gefur nýliðið ár einhver fyrirheit um hvað koma skal á nýju ári? Og hvað segja hin tvö ár sem ríkisstjórnin hefur lifað um framhaldið?

Aðalheiður Ámundadóttir blaðamaður á Fréttablaðinu og Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur og dósent við Háskóla Íslands ræða ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur við Lindu Blöndal í 21 í kvöld.

Fátt ef eitthvað getur fellt ríkisstjórnina nema ef vera skyldi eitthvert hneykslismál sem enginn sér fyrir. Samherjamálið er enn óskrifað blað hvað það varðar segja Aðalheiður og Stefanía. En það sem og önnur mál séu ekki fyrirsjáanleg að muni granda stjórn Katrínar.

„Þetta einkennist af karlrembu”, segir Stefanía um gagnrýni á Katrínu og um að hún sé handbendi Bjarna Benediktssonar. Stefanía segir hana staðið í lappirnar þegar Sigríður Andersen fór frá, það hafi verið krafa Katrínar.  Um uppbyggingu bandaríska varnarliðsins á Suðurnesjum hafi hún aftur á móti þurft að lúta fyrir vilja samstarfsflokkanna.

„Ólgan er fyrst og fremst innan stofnana og varðandi hátt setta embættismenn”, segir Aðalheiður um hvar hafi verið órói hjá ríkisvaldinu á liðnu ári, t.d. innan Ríkislögreglustjóraembættisins og heilbrigðisstofnana.

En litið í baksýnisspegilinn þá voru hálkublettir í fyrra fyrir forsætisræðherra í stærsta sakamáli Íslands að mati Aðalheiðar: „Geirfinnsmálið hefði getað fellt Katrínu. Það var gríðarleg reiði yfir því hvernig staðið var að sáttameðferð í því máli. Það hefði getað farið með hana”. Sáttameðferð í Geirfinnsmálinu er þó ekki lokið.

Ríkisstjórnin virðist halda vel saman miðað við stjórnir undanfarin áratug eða frá hruni. „Ég held að það megi þakka góðu samstarfi lykilmanna í ríkisstjórninni, það er að segja oddvitum stjórnarflokkanna og ég held að Katrín Jakobsdóttir verði líka að fá hrós fyrir að hafa haldið vel á spilunum og haldið hópnum vel saman”, segir Stefanía og hún hafi í ýmsu fengið ómálefnalega gagnrýni á sig.

Um að vera undirlægja Bjarna Ben?

 „Já sem eru svona týpísk karlremukomment að mínu viti”.

En um gagnrýni á Katrínu Jakobsdóttur um að hafa svikið málstað VG og kjósendur sína segir Aðalheiður: „Mér finnst hún hafa staðið þá gagnrýni býsna vel af sér. Maður finnur ekki fyrir því að hún bogni undan því”.

 Hvað gæti fellt þessa ríkisstjórn?

„Það geta komið upp gífurleg hneykslismál eins og hafa gert í gegnum tíðina. Ég held að það séu slík mál sem geti tekið einhverja á taugum”, segir Stefanía.