Ólafur Stephensen, formaður Félags atvinnurekenda týndist um stund í frumskógi íslenskrar stjórnsýslu og deilir þeirri merkilegu lífsreynslu á fésbókarsíðu sinni í dag.
Lesningin er svo að segja sláandi: \"Í morgun sá ég afar framandlega rukkun frá Tollstjóra í heimabankanum mínum. Ég var krafinn um skipulagsgjald af bílskúrnum mínum,\" skrifar Ólafur og segir svo söguna: \"Ég hafði ekki heyrt um þennan skatt áður, en sannreyndi með gúgli að hann er lagður á nýbyggingar og á að standa straum af kostnaði við gerð skipulagsáætlana. Og af því að þetta nýjasta mannvirki á lóðinni minni er tíu ára gamalt kom þetta mér spánskt fyrir sjónir. Ég hringdi í Tollstjóra og þá upphófst þessi áhugaverða ganga milli Heródesar og Pílatusar:
Þjónustufulltrúi Tollstjóra: Ég veit ekkert hvað þetta er. Þú verður að spyrja Ríkisskattstjóra, við innheimtum bara það sem hann segir okkur að innheimta.
Þjónustufulltrúi Ríkisskattstjóra: Ég hef bara aldrei heyrt um þetta skipulagsgjald. Gef þér samband við launþegadeildina.
Ég: Af hverju ætti launþegadeildin að vita eitthvað um skipulagsgjald?
Þjónustufulltrúi Ríkisskattstjóra: Ég gef þér samband við launþegadeildina.
Elskulegur starfsmaður launþegadeildar: Nei þessi skattur hefur sko ekkert með okkur að gera. Þú verður að tala við Skipulagsstofnun. Ég skal fletta upp símanúmerinu.
Þjónustufulltrúi Skipulagsstofnunar: Þetta er voða algengur misskilningur, að við höfum eitthvað með álagningu þessa skatts að gera. Þú verður að tala við fasteignaskrána hjá Þjóðskrá.
Þjónustufulltrúi Þjóðskrár: Já einmitt, þeir voru að meta hjá þér bílskúrinn. Þess vegna áttu að borga þennan skatt.
Ég: En bílskúrinn var byggður 2005 og þetta er skattur sem leggst á nýbyggingar ...
Þjónustufulltrúi Þjóðskrár: Já það hefur gleymzt að meta skúrinn þegar hann var byggður. Það er verið að taka til í þessu og slumpa á brunabótamat á bílskúrum sem hafa ekki verið metnir. Fullt af fólki að fá svona rukkanir.
Sem sagt: Fjórum ríkisstofnunum, fimm viðmælendum, mikilli biðtónlist og óteljandi tilkynningum um að símtöl væru afgreidd í réttri röð síðar, fékk ég réttar upplýsingar. Talsvert verk óunnið í stjórnsýslunni,\" spyr Ólafur í lok færslunnar.