Ekki er vitað hve margir fylgdust með rauða ofurmánanum í nótt en nátthrafnar segja að mikil fegurð hafi einkennt tunglið. Myrkvinn sást víða um land.
Talið var fyrirfram að myrkrinn myndi sjást einna best á Norðurlandi. Gaukur Hjartarson, íbúi á Húsavík, tók þá mynd af mánanum sem fylgir fréttinni en hann segir að skýjahula hafi lagst fyrir tunglið meðan það var að myrkvast en hafi svo létt til þegar leið á myrkvann eins og sést á myndinni.
\"Já það var gaman að fylgjast með þessu. Var vissulega nokkuð langt \"augnablik\". Því miður dró skýjaslæðu fyrir tungl við myrkvann þannig að þegar máni missti ljósmagnið hvarf hann alveg og ég týndi honum í rúman hálftíma,\" sagði Gaukur í samtali við Hringbraut í morgun, ögn sybbinn en kátur með afrakstur næturinnar þrátt fyrir allt.
Rúv hefur eftir Sævari Helga Bragasyni, formanni Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness að nóttin hafi leitt í ljós einstaklega vel heppnaðan tunglmyrkva og blóðmána og með því fegurra sem hann hafi séð hingað til.
„Mistrið og skýin settu svolítið skemmtilegan svip á þetta allt saman, þannig að ég er bara hæstánægður,\" sagði Sævar í samtali við Rúv.