Viðreisn: enginn eftirlaunaaldur

Stofnfundur Viðreisnar, nýs stjórnmálaflokks, var haldinn í Hörpu í gær. Mikið fjölmenni var á fundinum, yfir 400 manns mættu þar sem 15 manna stjórn var kosin, 7 konur og 8 karlar og var kjörinu stýrt á þann veg að kynjahlutföllin yrðu jöfn. Nýkjörinn formað, Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og útgefandi ræðir í kvöld við Lindu Blöndal í Umræðunni á Hringbraut.  Benedikt sagði flokkinn munu á næstunni stilla upp á framboðslista um allt land og á þeim verði karlar og konur til skiptis í framboðssætum. Benedikt sagði félagsmenn og stjórn Viðreisnar einróma í því að hafna prófkjörsleiðinni, hún etji fólki gegn hvort öðru og væri of kostnaðarsöm. Megin áherslur Viðreisnar eru á að fólk geti starfað eins lengi á vinnumarkaði eftir því sem heilsa leyfi og þannig verði horfið frá sérstökum eftirlaunaaldri. Gera verði öldruðum og öryrkjum kleift að vinna án þess að þeim verði refsað með skerðingu lífeyrisgreiðslna eða bóta. Einnig er megináhersla Viðreisnar að halda tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið. Fyrst verði kosið um hvort taka eigi aftur upp og hins vegar og síðar hvort að ganga eigi í Evrópusambandið, verði viðræður teknar upp aftur.  Viðtalið við Benedikt má sjá hér: