Tvöfalt fleiri vilja lögleyða fíkniefni

Nærri helmingur þeirra sem styður Pírata, eða 46,2% eru fylgjandi því að lögleiða neyslu kannabisefna á Íslandi, að því er fram kemur í nýrri viðhorfskönnun á vegum MMR. Stuðningsmenn stjórnvalda styðja lögleiðinguna síður en fylgjendur stjórnarandstöðunnar.


Könnunin var gerð 16. til 21. apríl og var heildarfjöldi svarenda ríflerga 100 manns eldri en 18 ára. Helstu niðurstöður hennar eru þær að 24,3% sögðust vera fylgjandi því að lögleiða neyslu kannabisefna nú, borið saman við 12,7% 2011. 46,2% þeirra sem styðja Pírata sögðust fylgjandi því að lögleiða ætti neyslu kannabisefna á Íslandi. 28,0% þeirra sem ekki studdu ríkisstjórnina sögðust vera fylgjandi lögleiðingu á neyslu kannabisefna á Íslandi, borið saman við 12,9% þeirra sem studdu ríkisstjórnina. 42,6% þeirra sem tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára) sögðust vera fylgjandi lögleiðingu á neyslu kannabisefna, borið saman við 3,0% þeirra sem tilheyrðu elsta aldurshópnum (68 ára og eldri).


 


.