Ríkisstjórnin kom saman til fundar í morgun. Tvö mál voru á fundi ríkisstjórnarinnar. En þau voru þessi; stytt útgáfa og þýðing á ritinu Kaupmannahöfn sem höfuðborg Íslands og um herferð samtakanna Women in Parlaments Global Forum – WIP Leadership Campaign.
Annað var ekki á dagskrá fundarins. Alþingi kemur saman á mánudag. Beðið er eftir ríkisstjórninni um hvaða mál hún leggur áherslu nú á þinginu fram að kosningum. Af fundarefninu má ráða að áhyggjurnar eru ekki miklar á þeim bæ.