Davíð Kristinsson hjá Heilsuþjálfun ehf, sem gefið hefur út bók um heilsu og hreysti, segist hafa upplýsingar um að hvert barn á Akureyri sem syngi söngva í búðum og öðrum fyrirtækjum í dag í tilefni öskudagsins snúi heim með um tvö kíló af sælgæti.
Þetta kemur fram í færslu sem Davíð ritar á facebook.
“Mér er óglatt. Sorrý en við fullorðnir/foreldrar erum fyrirmyndin, og ef þetta er uppeldið þá er mataræðið ekkert að fara lagast,” segir Davíð.
Gagnrýni hans vekur misjöfn viðbrögð. Margir taka undir en aðrir telja í lagi að sukka einn gleðidag á árinu sem mörg börn upplifa sem ævintýri. Davíð nefnir þó að þessi dagur sé ekki einsdæmi, þetta sé ekki eini dagurinn sem íslensk börn fái nammi. Hann kallar eftir hugmyndum um aðrar gjafir en sælgæti í staðinn fyrir söng á öskudaginn. Til dæmis, endurskinsmerki, merktar firmavörur.
“Ekki koma með þá afsökun að þetta sé bara einu sinni á ári! Því jú, börnin þín fá að jafnaði oft sykur og nammi,” segir heilsufrömuðurinn og er nóg boðið.