Formannspör í boði

Kosningin fer nú fram á milli Sig­mund­ar Davíðs Gunn­laugs­sonar og vara­formannsins, Sig­urðar Inga Jó­hanns­sonar, í embætti for­manns. Lilja Alfreðsdóttir steig fram ákveðið nú um helgina og býður sig fram til varaformanns en það hefur Eygló Harðardótt­ir, vel­ferðarráðherra, líka gert en segist taka aðeins sæti með nýjum formanni  Dúóin eru því tvö: Sigmundur og Lilja og síðan Sigurður Ingi og Eygló. Lilja hefur fyrst og fremst verið stuðningsskona Sigmundar, miðað við svör hennar í viðtölum. 

Sigmundur og Lilja hafa sterka vígstöðu þar sem þau geta bent á unnin verk á kjörtímabilinu sem má segjast vera mun meiri en Sigurði Inga og Eygló hafi tekist á þingi og í embættum. Eitt frumvarp af fjórum húsnæðisfrumvörpum Eyglóar er orðið að veruleika. Sigurður Ingi bakkaði með breytta fiskveiðistjórnunarlög og með Fyrstu fasteign er harla lítið skref tekið til að afnema verðtrygginguna, miðað við loforð Framsóknar að afnema hana alveg. Varðandi Lilju, þá hefur hún verið ansi ötul á fystu vikunum í embætti og vel unnið að því að koma því til skila í fjölmiðla og víðar.