Tvö ár frá afhjúpun á gunnari braga

Tvö ár eru nú liðin síðan DV greindi frá sms skilaboðum frá Gunnari Braga þegar hann var þingmaður Framsóknarflokksins í tíð Vinstri stjórnarinnar.

Gunnar Bragi hafði 12. mars árið 2013 hvatt eigin þingflokk til að tefja fyrir afgreiðslu náttúruverndarlaga og skrifaði orðrétt:

 „Sæl. Reiknað er með þingfundi í kvöld og nótt. Við þurfum að manna daginn, kvöldið og nóttina. Rúv, 3.umr. verður eitthvað fram eftir degi og síðan eru það ívilnanir vegna nýfjárfestingar 3.umr. Niðurgr. vegna húshitunar (kyntar veitur) 2. umr. kemur svo og þá kemur Náttúruverndin 2. umr. Við viljum alls ekki að náttúruverndin komist að og við þurfum að standa vaktina. kv. gb.“

Skilaboðin afhjúpuðust eftir að tölvuhakkari gerði árás á gagnagrunn Vodafone og fjöldi viðkvæmra upplýsinga opinberaðist.

Nokkuð var um að fjölmiðlar leituðu viðbragða Gunnars Braga sem orðinn var utanríkisráðherra á þeim tíma er vinnubrögðin afhjúpuðust. Ekki fer sögum af því að hann hafi svarað sérstaklega fyrir skilaboðin eða krafa komið fram um að hann axlaði ábyrgð. Á þessum tíma var mikið rætt um virkjanaáform og tengsl Framsóknarflokksins við stóriðjur og þá ekki síst tengsl Gunnars Braga við hagsmunaöfl í skagfirsku héraði.

Samkvæmt DV voru framsóknarmenn mjög mótfallnir frumvarpi Svandísar Svavarsdóttur, fyrrverandi umhverfisráðherra, um náttúruvernd og vildu tefja fyrir afgreiðslu þess á þinginu.

Síðar sagðist flokksbróðir Gunnars Braga, Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfisráðherra ætla að afturkalla náttúruverndarlögin en nýverið náðist breið sátt um lendingu nýrra laga.