Tvö ár eru liðin frá síðustu kosningum en þær fóru fram 28. október 2017. Í ítarlegri fréttaskýringu á Kjarnanum kemur fram að stuðningur við ríkisstjórnina hefur dregist saman um rúman þriðjung.
Í fyrstu var mikill meðbyr með stjórn Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins og mældist hann með 66,7% stuðning. Í síðustu könnun MMR kom fram að aðeins 42,2 prósent landsmanna styðja ríkisstjórnina. 37% eru horfin.
Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkurinn tapa mestu. VG fékk 16,9 prósent í kosningum en mælist nú með 9,7 prósent, þannig hefur flokkurinn misst 43 prósent fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 25,2 prósent haustið 2017 en mælist nú með 21,1 prósent fylgi, en flokkurinn hefur á síðustu mánuðum farið undir 20 prósent í könnunum.
Sá flokkur sem hafa bætt mest við sig er Viðreisn. Flokkurinn fékk 6,7 prósent í kosningum en mælist nú með tíu prósent fylgi og hefur bætt sig um 49 prósent. Fylgi Samfylkingarinnar hefur einnig aukist úr 12,1 prósent í 15,3.