Karlmaður um tvítugt hefur játað að hafa framið vopnað rán í útibúi Landsbankans við Borgartún í gær.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að ungir maðurinn gaf sig fram í gærkvöld eftir að lögreglan birti myndir af honum.
Annar maður á sama aldri var handtekinn í nótt og grunaður um aðild að ráninu. Lögregla reiknar með því að óska eftir gæsluvarðhaldi yfir mönnunum seinna í dag.
Yfirheyrslur standa yfir og segir lögegla að rannsókn málsins miði vel. Þrír aðrir hafa verið handteknir en ekki grunaðir um aðild að ráninu sjálfu.