Tvískinnungur íslendinga algjör!

VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna  segir vegna ráðningarsamnings sem félagið hefur séð og sendur var frá Vinnumálastofnun að „með samningnum er í raun verið að flytja inn  réttlausa einstaklinga til að sinna störfum hér á landi, undir lágmarkskjörum íslenskra kjarasamninga“ eins og það er orðið í ályktun.

 VM mun birta auglýsingar í fjölmiðlum þar sem vakin verður athygli „á þessu alvarlega máli og hvað slík starfsemi getur þýtt fyrir launafólk, atvinnulífið og samfélagið allt,“ eins og Guðmundur Ragnarsson formaður VM orðar það.

 Guðmundur Ragnarsson formaður VM segir: „Við Íslendingar erum mikið fyrir að beita okkur fyrir mannréttindum um allan heim, sem er gott mál. Við virðumst hins vegar vera til í að fá ódýrt og réttlaust vinnuafl hingað til lands, án þess að vilja nokkuð með það hafa.“

 Í dag var opnað sérstakt svæði á heimasíðu VM, þar sem fólk er meðal annars hvatt til að tryggja að starfsmenn starfsmannaleiga njóti sömu kjara og ef þeir væru í beinu ráðningarsambandi við notendafyrirtækin.