Tvennt í stöðunni: bdmf eða bdvg

Það er engin tæptunga töluð í Ritstjóraþætti kvöldsins þar sem jafn þaylreyndir fjölmiðlamenn og Björgvin G. Sigurðsson og Karl Garðarsson rýna í eftirmál kosninganna á Íslandi.

Raunar eru allir sem sitja við Ritstjóraborð kvöldsins fyrrverandi alþingismenn fyrir utan langa fjölmiðlareynslu sína - og sitt sýnist hverjum. Björgvin kveðst sannfærður um að af samstjórn Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Flokks fólksins verði á næstu dögum, mjög líklega undir forsæti Sigurðar Inga Jóhannssonar sem muni freista þess með þessum hætti að sameina Framsóknarflokkinn og Miðflokkinn á miðju kjörtímabili og leiða Lilju Alfreðsdóttur til forystu.

Karl Garðarsson telur nánast óhugsandi að Sigurður Ingi og Sigmundur Davíð geti starfað saman eftir yfirlýsingar margra Miðflokksmanna að undanförnu sem séu örugglega ekki settar fram af einhverri tilviljun; Sigurður Ingi hafi nú pálmann í höndunum og geti hæglega leitt stjórn með Sjálfstæðisflokki og Vinstri grænum, eitthvað sem Bjarna Benediktssyni, sem varla geti þolað heilt kjörtímabil utan stjórnar, muni hugnast ágætlega enda hefur hann talað fyrir því að brúa pólitískar gjár, en aðstæður í efnahagslífinu séu einmitt ákjósanlegar til þess nú um stundir. Og hvað Katrínu varði; það sé orðið pólitískt lífsspursmál fyrir hana að komast í stjórn - og vel megi hugsa sér að BDVG verði þrautaniðurstaðan á endanum eftir margar mislukkaðar tilraunir til að koma öðrum flokkum saman.

Ritstjórarnir byrja kluklan 21:00 í kvöld.