Tvennir tímar með gvendi jaka

Heimildarmyndin Tvennir tímar, brot úr sögu verkalýðshreyfingarinnar verður sýnd á Hringbraut í kvöld, en burðarásinn í henni er enginn annar en Guðmundur J. Guðmundsson, einatt kallaður Gvendur jaki, ein af helstu goðsögnum íslenskrar verkalýðsbaráttu á síðustu öld.

Myndin var unnin á tíunda áratug síðustu aldar, en stendur þó ennþá fyrir sínu sem merkilegur vitnisburður um þá árangursríku réttindabaráttu sem Alþýðusamband Íslands og félögin sem að því standa stóðu í frá því fyrir réttri öld.

Það er kvikmyndafélagið Nýja bíó sem framleiddi myndina á sínum tíma, en sjónvarpsstöðin Hringbraut hefur nú gert samning við það um sýningu margra helstu heimildar-, mannlífs- og menningarmynda þess frá árum áður.

Tvennir tímar hefst klukkan 21:00 í kvöld. Myndin er 57 mínútur að lengd.