Formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis segir erfitt fyrir starfsmenn að þiggja boð um hlutastarf hjá Airport Associates, en að það sé sömuleiðis erfitt að hafna því. Í gær var greint frá því að 205 af þeim 315 starfsmönnum sem Airport Associates sagði upp störfum yrði boðin staða hjá fyrirtækinu að nýju, en að það yrði í mörgum tilfellum í lægra starfshlutfalli og/eða með breyttum vaktatöflum. Mbl.is greinir frá.
„Þetta eru tveir vondir kostir. Ég öfunda ekki fólkið af að þurfa að taka afstöðu. Það er erfitt fyrir það að hafna boði um hlutastarf en einnig erfitt að þiggja það,“ segir Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, um þá ráðningarsamninga sem starfsfólki Airport Associates á Keflavíkurflugvelli eru boðnir.
Airport Associates sagði starfsmönnunum 315 upp í kjölfar gjaldþrots WOW air, sem var langstærsti viðskiptavinur fyrirtækisins, en um helmingur verkefna þess voru tengd flugfélaginu.
Í gær sagði Sigþór Kristinn Skúlason, forstjóri Airport Associates, að alltaf hefði staðið til að bjóða hluta þeirra sem var sagt upp starf sitt að nýju. Hann sagði það þó nauðsynlegt að breyta vaktatöflum og starfshlutfalli. Með því að minnka starfshlutfall gæfist kostur á að bjóða fleirum að halda starfi og þannig væri mögulegt að minnka höggið.