Tveir veðurmælar foknir

Að minnsta kosti tveir veðurmælar Veðurstofunnar eru foknir út í veður og vind og allar líkur á að dagar þeirra séu taldir.

Þeir mæla því ekki frekari vindstyrk.

Fréttastofa Rúv greinir frá því að annar mælirinn, sá við Stórhöfða, hafi sýnt 49 metra á sekúndu áður en hann hvarf. Hinn, mælir undir Eyjafjöllum, komst aðeins hærra eða í 52 metra áður en hann hvarf af ratsjánni.

Sturlað veður er nú í Eyjum og færist nær mesta þéttbýli landsins. Þak hefur fokið, rúður brotnað og slæmt ástand að sögn heimamanns sem Hringbraut ræddi stuttlega við.