Tveir þriðju vilja haftafé í spítala

Meira en tveir af hverjum þremur svarendum, sem afstöðu taka, telja rétt að nýr spítali verði byggður fyrir hluta þess fjár sem fæst vegna losunar haftanna. Þetta sýna niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins sem birtar eru í dag.

Í könnunini kemur jafnframt fram að rétt tæplega þriðjungur svarenda vill ekki að hluti fjármunanna verði nýttur á þennan hátt.

„Það er mikill vilji til þess að byggja nýjan spítala og ég tel að fólk líti á það sem forgangsmál. Og það er mjög gott,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis og fyrrverandi heilbrigðisráðherra við blaðið um niðurstöður könnunarinnar. Guðlaugur Þór segir aftur á móti að það verði að nýta fjármunina, sem fást úr aðgerðunum við að aflétta höftunum, til að lækka skuldir, rétt eins og flokksfélagi hans og formaður, Bjarni Benediktsson hefur heitið að verði gert.

Niðurstöður könnunarinnar sýna að 57 prósent aðspurðra vilja að hluti fjármunanna verði nýttur til að byggja nýjan spítala, 25 prósent vilja ekki að hluti fjármunanna verði nýttur í það, 17 prósent eru óákveðin í afstöðu sinni og 2 prósent svara ekki.

Áætlað hefur verið að ef nauðasamningar verða samþykktir geti það skilað ríkissjóði allt að 650 milljörðum króna.