Tveir þriðju kjósenda segjast ætla að kjósa guðna th.

Samkvæmt nýrri könnun Maskínu ætla tveir af hverjum þremur kjósendum að kjósa Guðna Th. Jóhannesson í forsetakosningunum þann 25.júní næstkomandi. Tæplega 15% segjast ætla að kjósa Davíð Oddsson og um 12% Andra Snæ Magnason en Höllu Tómasdóttur segjast um 3% ætla að kjósa. Forsetaframbjóðendurnir hafa flestir verið í viðtölum á Hringbraut síðustu daga. Þar á meðal Guðni Th. sem sagði í Þjóðbraut síðastliðinn sunnudag að allar forsetakosningar væru sögulegar. Hér má sjá myndbrot úr viðtalinu, þar sem Guðni fer aðeins yfir kosningar síðustu áratuga og þá ekki síst hörkuna sem einkenndi kosningarnar árið 1952.