Tveir nýir landspítalar á þriggja ára fresti

Á Íslandi er við lýði flókið og umfangsmikið styrkjakerfi sem lögfest var með búvörulögunum árið 1993. Kerfinu er ætlað til að stuðla að framförum í íslenskri búvöruframleiðslu, auka samkeppnishæfni landbúnaðar og miða að því að bændur hér á landi búi ekki við lakari starfskilyrði en almennt gerist í nágrannalöndum. Niðurstaðan er hins vegar sú að búvörulögin kostuðu ríki, neytendur og skattgreiðendur um 35 milljarða einungis á árinu 2014.

Þetta er sóun á fjármagni sem gæti farið í að styðja við grunnstoðir í samfélaginu, eins og að byggja nýja spítala. Til samanburðar hefur verið áætlað að nýr Landspítali muni kosta 50,5 milljarða, sem eru um 17 mánuðir af núverandi landbúnaðarkerfi.

\"1-AFH-graf-1\"Heimild: OECD (2015): Agricultural Policies in OECD Countries at a Glance og Ríkisreikningar.

Nánar á

https://romur.is/tveir-nyir-landspitalar-med-thriggja-ara-fresti/