Tveir menn, báðir flugkennarar, létu lífið í flugslysinu skammt frá Hafnarfirði í dag.
Tilkynning barst skömmu eftir klukkan þrjú um að tveggja sæta kennsluflugvélar væri saknað.
Fjölmennt lið björgunaraðila var sent á vettvang og að flugvélin hafi fundist tæpum hálftíma síðar, nokkra kílómetra suðvestur af Hafnarfirði. Mennirnir, sem voru á þrítugs-og fertugsaldri voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Þeir störfuðu báðir sem flugkennarar við Flugskóla Íslands samkvæmt yfirlýsingu flugskólans vegna slyssins. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um hina látnu að svo stöddu.
Aðdragandi slyssins er óljós en rannsókn stendur yfir.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa og lögregla vinna að rannsókn málsins.