Ekki er talið að dauða manns, sem féll fram af svölum í Breiðholti í gær, hafi borið að með saknæmum hætti. Tveir menn voru í haldi lögreglunnar í gær vegna málsins en þeim hefur verið sleppt.
Lögreglan var með mikinn viðbúnað þar ssem maðurinn fannst síðdegis í gær. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn, staðfesti undir kvöld að maður hefði látist í Breiðholti en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Málið er enn í rannsókn, en mennirnir tveir sem voru haandteknir á staðnum munu báðir hafa verið með hinum látna í íbúðinni þegar hann féll fram af svölunum.