Tveir handteknir í alþjóðlegri lögregluaðgerð – tæplega 12.000 steratöflur haldlagðar

Tveir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, lögreglunnar á Suðurnesjum og tollyfirvalda gegn innflutningi og sölu á ólöglegum lyfjum og sterum á fyrri hluta ársins, frá miðjum janúar og fram í byrjun maí. Samtals var lagt hald á 1.100 ambúlur og 11.565 steratöflur.

Málið er hluti af aðgerðum sem tengjast Europol, en á tímabilinu var lagt hald á mikið magn af lyfjum og sterum í fjölmörgum löndum, sem má lesa nánar um í fréttatilkynningu Evrópulögreglunnar.

Hérlendis voru stöðvaðar sendingar sem reynt var smygla til landsins með flugi og í pósti. Alls var um ellefu tilvik að ræða.

Aðgerðirnar eru liður í baráttu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn skipulagðri brotastarfsemi, en áður hefur verið greint frá handtökum vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti, auk þess sem handtökum vegna vændismála hefur fjölgað mikið á þessu ári samanborið við fyrri ár.