\"Núna í morgun var reynt að brjótast inn í húsið okkar við Dalsbyggð. Við þökkum ótrúlega öflugri nágrannavörslu og snörum viðbrögðum lögreglu að það tókst ekki heldur náðust 2 menn. Þessir sömu menn hafa sést á vettvangi við önnur innbrot í Garðabæ svo vonandi er þessi innbrotahrina á enda!\"
Þannig hljóðaði færsla á Facebook síðu íbúa Garðabæjar í morgun. Lögregla staðfesti jafnframt við DV að hún hefði handtekið nokkra aðila í Garðabæ grunaða um að stunda innbrot. Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði í samtali við DV að lítið væri hægt að segja þar sem lögregla var á vettvangi.
Garðabær hefur mátt þola stóran skerf af þeirri innbrotahrinu sem dunið hefur yfir höfuðborgarsvæðið að undanförnu. Lögregla hefur sagt að um skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða.
Bæjaryfirvöld hafa haldið íbúafundi um málið og nýlega var sagt frá því að bærinn, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Neyðarlínan ohf hefðu undirritað samkomulag um verklag við kaup, uppsetningu og rekstur á öryggismyndavélakerfi í Garðabæ.