Lögreglan í Vestmannaeyjum greinir frá því að fjórar líkamsárásir hafi átt sér stað á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum síðastliðna nótt. Þá þurfti að flytja tvo með sjúkraflugi til lands. Í skeyti lögreglunnar segir:
„Rólegt var hjá lögreglu fyrri part nætur en undir morgun varð töluverður erill. Fjórar líkamsárásir liggja fyrir eftir nóttina, tvær þeirra eru minniháttar og tvær alvarlegri og þurfti að flytja tvo aðila með sjúkraflugi til Reykjavíkur vegna áverka sem þeir fengu. Þrír menn eru í haldi vegna rannsóknar málanna.
10 fíkniefnamál komu upp í gærkvöldi og nótt og eru þau öll svokölluð neyslumál, nema eitt þar sem grunur er um sölu.“