Tveir dagar til stefnu

Þegar bankakerfið hrundi fyrir tíu árum þurftu margir að axla þungar byrðar. Þúsundir misstu heimili sín. Tjónið af völdum hrunsins er talið nema samanlagðri landsframleiðslu Íslands í sex ár. Tvo þriðju hluta skaðans, jafnvirði landsframleiðslu Íslands í fjögur ár, báru útlendingar, einkum eigendur erlendra banka sem föllnu bankarnir gátu ekki staðið í skilum við. Þriðjung skaðans, jafnvirði landsframleiðslu Íslands í tvö ár, báru Íslendingar sjálfir. Munaði þar mest um hrun á hlutabréfamarkaði, rýrnun lífeyrissjóða og kostnað skattgreiðenda vegna fjármögnunar nýrra banka á rústum gömlu bankanna og vegna endurfjármögnunar Seðlabanka Íslands sem varð tæknilega gjaldþrota. Þessi fjármögnun nam 36% af landsframleiðslu og skiptist jafnt milli föllnu bankanna annars vegar (18%) og Seðlabankans hins vegar (18%).

Nánar á

https://www.frettabladid.is/skodun/tveir-dagar-til-stefnu