Útbúin var mjög góð aðstaða með tveimur góðum skurðstofum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir nokkrum árum. Önnur skurðstofan var aldrei tekin í notkun en starfsemi var í hinni fram á mitt árið 2010, þá var skurðstofunni lokað.
Þetta kemur fram í svari Halldórs Jónssonar forstöðumanni HSS í svari við fyrirspurn á Spyr.is.
Upplýsingarnar komu fram vegna þeirrar spurningar hvort neyðarmóttaka fyrir landsbyggðirnar ætti að vera á HSS Suðurnesjum og tengist umræðunni um Reykjavíkurflugvöll. Sjúkraflug myndi færast til Keflavíkur um leið.
Árið 2006 var lokið við að innrétta tvær skurðstofur hjá HSS og þóttu báðar tilkomumiklar. Verulega hefði þurft að bæta aðstöðu HSS enn frekar til að sinna þjónustu fyrir landsbyggðirnar. Þar er engin gjörgæsludeild, of lítil slysa- og bráðadeild og aðeins 23 rúm á almennri legudeild. Til að sinna neyðarmóttöku, þyrfti einnig að ráða mikinn fjölda sérhæfðra starfsmanna.
Halldór Jónsson hjá HSS segir að þegar sjúklingur sé fluttur með sjúkraflugi af landsbyggðinni til Reykjavíkur sé það almennt vegna þess að þörf sé á sérhæfðari/fjölbreyttari heilbrigðisþjónustu en völ er á, á heilbrigðisstofnunum og/eða sjúkrahúsum á landsbyggðinni. \"Það þarf því öfluga slysa- og bráðadeild, gjörgæsludeild, skurðdeild og almennar legudeildir.. Öll þessi þjónusta kallar á sérhæfða og fjölbreytta sérfræðimenntun heilbrigðisstarfsfólks, og þjónustan þarf að vera í boði 24 tíma á sólarhring alla daga ársins.\"
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) hefur góðar skurðstofur, enga gjörgæsludeild, of litla slysa- og bráðadeild og eina almenna legudeild með 23 rúmum.
\"Það er því ljóst að verulega þyrfti að bæta og auka aðstöðu hvað varðar húsnæði, tæki og búnað og fjölga verulega sérhæfðu starfsfólki,\" segir í svari Halldórs Jónssonar við fyrirspurn frá lesanada á spyr.is.