Tvær nýjar konur í stjórn hb granda

Tveir nýir stjórnarmenn, þær Kristrún Heimisdóttir og Danielle Pamela Neben, taka sæti í stjórn útgerðarfyrirtækisins HB Granda á stjórnarfundi á morgun. Í tilkynningu félagsins til Kauphallar kemur fram að þar sem frambjóðendur eru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem á að kjósa á fundinum og samsetning stjórnar fullnægir ákvæðum laga og samþykkta félagsins um kynjahlutföll, sé sjálfkjörið í stjórn arsætin tvö. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda, sagði sig úr stjórn fyrirtækisins á dögunum. Áður hafði varaformaður stjórnarinnar, Rannveig Rist, sagt sig úr stjórninni vegna óánægju með hvernig staðð var að brottvikningu fyrrverandi forstjóra félagsins, Vilhjálms Vilhjálmssonar. Fyrir eru í stjórn HB Granda þau Anna G. Sverrisdóttir, Eggert Benedikt Guðmundsson og Magnús Gústafsson, sem er stjórnarformaður.