Tvær deildir stjórnmálaflokka

Við lestur skoðanakannana og samanburð á þeim sést skýrt að flokkarnir skiptast í tvo ólíka hópa, tvær deildir. Í efri deild eru Sjálfstæðisflokkur, Píratar og Vinstri græn. Í neðri deildinni eru Framsókn, Viðreisn, Samfylking og Björt framtíð.

Hér er samanburður á fylgi flokkanna í einstaka könnunum og eins hvert meðaltal þeirra er þegar allar nýjustu kannanir eru bornar saman.

 

       
 365GallupMBLMMRMeðaltalÞingmenn
A-listi Björt framtíð7,47,76,08,27,35
B-listi Framsóknarflokkur8,59,89,19,29,16
C-listi Viðreisn6,612,48,810,29,56
D-listi Sjálfstæðisflokkur23,722,621,121,422,215
P-listi Píratar20,818,322,619,420,314
S-listi Samfylking6,57,16,59,07,35
V-listi Vinstri græn19,214,518,614,516,712

Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann könnun Morgunblaðsins.

Nú þegar átta dagar eru til kosninga eykst spennan. Hvaða flokkur verður stærstur og eins hvort Samfylkingu og Bjartri framtíð tekst að ná inn þingmönnum.