Tusse við Gísla Martein: „I am Cunt“

Tiltekin áríðandi spurning hefur brunnið á vörum allra Íslendinga sem horfðu á Söngvakeppnina í sjónvarpinu í gær. Í dómaranefndinni var þar staddur sænski stórsöngvarinn Tousin Michael Chiza, sem keppti fyrir hönd Svíþjóðar í Eurovision-söngvakeppninni árið 2021. Hann er betur þekktur undir listamannsnafninu Tusse, og því hefur margur Íslendingurinn velt vöngum yfir því hvort listamaðurinn knái þekki merkingu hins keimlíka íslenska orðs „tussu“.

Það var Gísli Marteinn Baldursson sem tók skarið og svaraði þessari spurningu á Twitter-síðu sinni í dag. Í færslu sem hann gaf út staðfesti Gísli að jú, Tusse veit vissulega hvað tussa er. Í svari við spurningu Margrétar Erlu Maack greindi Gísli frá kynnum sínum við Tusse, sem kynnti sig fyrir honum undir nafninu „Cunt.“