Tunglið hylur 99,5% sólarinnar


Ágætis líkur eru á því að landsmenn sjái sólmyrkvann á morgun því þrátt fyrir skýjaslæðu á himni verður ugglaust hægt að sjá vel í gegnum þessar maríutásur á lofti. Sólmyrkvinn í fyrramálið, sá fyrsti við Ísland í ríf 60 ár, verður rétt fyrir utan við austurströnd Íslands. Hans á samt að verða vart um land allt, en myrkvinn verður þó misjafn; í Reykjavík hylur tunglið tæplega 98% sólar en 99,5% á Austurlandi.


Sólmyrkvi  verður þegar tunglið gengur milli sólar og jarðar svo tunglið myrkvar sólina að hluta til eða í heild frá jörðu séð.. Það gerist aðeins þegar sólin, tunglið og jörðin eru í beinni línu. Við almyrkva hylur tunglið skífu sólar í heild sinni en við deildar- eða hringmyrkva er aðeins hluti sólar hulinn. Almyrkvar á sólu eru þannig tímabundin tilviljun frá náttúrunnar hendi. Frá jörðu séð eru tunglið og sólin ámóta stór á himninum, en ástæðan er sú að sólin er um 400 sinnum stærri en tunglið að þvermáli en um leið 400 sinnum lengra í burtu frá jörðinni en tunglið. Tunglið virðist því smellpassa fyrir sólina við almyrkva.


Sólmyrkvar eru alla jafna mikið sjónarspil en að horfa á sólina með berum augum getur valdið augnskaða, jafnvel blindu í verstu tilfellum. Þar af leiðandi er nauðsynlegt að nota viðeigandi hlífðarbúnað — sólmyrkvagleraugu, sólarsjónauka, eða sólvörpun til að fylgjast með sólmyrkvum.



Á Íslandi sást almyrkvi síðast árið 1954. Næst á eftir sólmrykvanum á morgun sést almyrkvi á Íslandi árið 2026.