Tugþúsundir fylgdust með gleðigöngu

Tugþúsundir Íslendinga og erlendra ferðamanna fylgdust með gleðigöngu Hinsegin daga í Reykjavík í dag í skýjuðu en mildu veðri og má heita að miðborgin hafi verið stútfull af fólki nú síðdegis.

Ganga var að venju litrík og fjörleg, en fjöldamargir hópar úr samtökum hinsegin fólks á Íslandi setti svip sinn á gönguna í ár, þar á meðal transfólk og intersex-fólk.

Heljarinnar víkingaskip rak lestina í göngu dagsins, marglitt eins og hæfir á svona degi, en um borð voru landnámsdrottningar í fylgd Páls Óskars sem var að vanda skrautlega klæddur í tilefni dagsins með íslenska fánann sem skykkju á bakinu.

Hápunktur Hinsegin daga var svo að göngu lokinni þegar slegið var upp tónleikaveislu við Arnarhól.