Tugþúsundir að leggja niður störf

Áhrifa verkfalls Starfsgreinasambandsins fer að gæta strax á fimmtudag og mun ekki síst bitna á ferðaþjónustunni. Félagar í 16 stéttarfélögum munu þá leggja niður störf víðs vegar á landsbyggðinni, en innan SGS eru 10 þúsund félagsmenn. Fyrst um sinn mun vinnustöðvunin aðeins standa yfir í 12 klukkustundir, en að því búnu og svo fremi ekki semjist hefst hrina verkfallsaðgerða eftir helgi.


Þunglega horfir í kjaraviðræðum í landinu. Flóafélögin slitu viðræðum við viðsemjendur sína í gær og undirbúa nú verkfallsaðgerðir og það sama er að segja af fjölmennasta stéttarfélagi landsins, VR, sem gerir einnig ráð fyrir vinnustöðvun í næsta mánuði. Ónefnd er þá ótímabundin vinnustöðvun félaga innan Bandalags háskólamanna sem hefur víðtæk áhrif á matvælaframleiðslu í landinu auk þess sem það hefur brát mjög alvarleg áhrif á húsnæðismarkaði, en erindi hjá sýslumannsembættum hlaðast nú upp og eru við það að stöðva fasteignaviðskipti og greiðsluflæði til verktaka og þar með húsbyggingar.