Enginn samningur er til á milli ríkis og sveitarfélaga og sjálfstæðra rekstrarfélaga um rekstur hjúkrunarheimila, heldur er stuðst við einhliða mat ríkisins á þörf fyrir hjúkrun og kostnaði við hana með svonefndum daggjöldum.
Ekki liggur fyrir hvernig þessi gjöld eru reiknuð og ekkert samkomulag virðist vera um kostnaðarskiptingu eða umfang þjónustunnar sem ríkið vill kaupa af þjónustuaðilum. Og þetta eru engir smápeningar sem um ræðir: Trúlega á bilinu 24 til 26 milljarðar króna – bara fyrir rekstur hjúkrunarheimilanna. Enginn virðist vita af hverju mál hafa þróast með þessum hætti og rétt er að benda á að þróunin hefur haldið áfram með þessum hætti í tíð margra ríkisstjórna og margra ráðherra og þingmanna sem að þessu hafa komið.
Þetta kemur fram í þættinum Okkar fólk í kvöld kl. 20:00, en þar halda þeir Helgi Pétursson og Friðþjófur Helgason áfram að fjalla um málefni eldra fólks og í þættinum er sjónum beint að rekstrarumhverfi hjúkrunarheimila á landinu. Meðal viðmælenda er Guðmundur Hallvarðsson, fyrrverandi þingmaður og stjórnandi Hrafnistuheimilanna sem gjörþekkir málaflokkinn.
Okkar fólk er frumsýnt klukkan 20:00 í kvöld.