Tugir strandaglópa, íslenskir sem erlendir, leitu ásjár Rauða krossins á Kjalarnesi í nótt þegar þjóðveginum var þar lokap vegna kafaldsbyls sem þar gekk yfir. Opnuð hafði verið fjöldahjálparstöð í Klébergsskóla og fékk fólkið þar inni áður en vegurinn var opnaður á ný í morgun.
Þá var Hellisheiði einnig lokuð í nótt vegna fárviðris og ofankomu og var vegurinn enn lokaður í morgun þegar fólk fyrir austan fjall ætlaði að halda til vinnu sinnar í höfuðborginni.
Lægðagangurinn heldur áfram á landinu næstu daga - og getur færð spillst án fyrirvara eins og dæmin sanna frá síðustu dögum.