„Það er staðreynd að þau fyrirtæki sem bera mestan hagnað og borga sem mestan arð í íslensku samfélagi eru sjávarútvegsfyrirtækin. Bara frá því að hæstvirtur fjármálaráðherra tók við hafa arðgreiðslur sjávarútvegsfyrirtækja verið á milli tólf til fjórtán milljarðar á ári en á sama tíma hefur hann og ríkisstjórn hans lækkað veiðigjöld sem þessu nemur, með þeim rökum að greinin hafi bara ekki efni á þeim,“ sagði Björt Ólafsdóttir, þingmaður Bjartar framtíðar, á Alþingi í gær.
Björt bar saman bónusgreiðslunnar margræddu og arðgreiðslur í sjávarútvegi.
„Mikil umræða hefur verið að undanförnu um háa bónusa,“ sagði Björt. „Fólk er eðlilega reitt enda eru áformin ekki í takt við þau viðmið sem við sem samfélag einsettum okkur eftir hrun. Hæstvirtur fjármálaráðherra sagði við þetta tilefni að bónusarnir lyktuðu af sjálftöku en bætti því við, sem skiptir líka máli, að bónusgreiðslur væru meðhöndlaðar eins og tekjur. Og svona gríðarlega háar tekjur launafólks eru skattlagðar tæplega til helminga. Ég hef áhuga á að spyrja hæstvirtan fjármálaráðherra, sem segir þessar greiðslur lykta af sjálftöku: Hvað finnst honum þá um háar arðgreiðslur fyrirtækjaeigenda í sinn eigin vasa? Það er auðvitað þannig, eins og háttvirtur ráðherra veit, að eigendur fyrirtækja ákveða sjálfir hve mikið þeir greiða sér í arð þegar hagnaður er af rekstri þeirra.“
Björt sagði arðgreiðslurnar margfalt hærri en bónusuna. „...sem hæstvirtur ráðherra fyrirlítur.“
„Arðgreiðslurnar eru ekki hundrað milljónir, þær eru taldar í milljörðum. Það er það sem skiptir máli þegar við ræðum um misskiptingu í þessu landi, þegar við ræðum um ríka eina prósentið, það eru þessar stærðir sem skipta máli. Það sem skiptir máli er hvernig við í stjórnmálunum og lagakerfið tökum á þessu því að bónusar eru skattlagðir hátt í fimmtíu prósent en fjármagnstekjuskattur er aðeins tuttugu prósent.
Síðan bað hún Bjarna Benediktson að útskýra fyrir sér hvernig hann raðar því upp fyrir sér að Kaupþingsmenn, sem launþegar beiti sjálftöku varðandi hundrað milljónir króna þegar fáir eigendur fyrirtækja, sér í lagi í sjávarútvegi, greiða sér milljarða í arð árlega.
„Hvaða form af sjálftöku er það í huga háttvirst ráðherra og hvaða hlutverki finnst honum hann sjálfur hafa í þessum gjörningi þar sem hér er fyrirkomulag sem býður upp á tuttugu prósent skatt.“