Sendiráð Bandaríkjanna í Jerúsalem opnar í dag með viðamikilli hátíðaropnun klukkan 13 að íslenskum tíma. Bandaríkjastjórn fylgir því eftir yfirlýsingu sinni að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels.
Sendiráðið var flutt frá Tel Aviv þar sem flest önnur þjóðríki hafa sín sendiráð. Minnst 37 Palestínumenn hafa fallið á Gaza í morgun við landamæragirðingarnar en Ísraelsher ætlar að tvöfalda viðbúnað sinn á landamærunum í dag.
Frá 30. mars hafa á sjötta tug Palestínumanna verið drepnir af ísraelskum hermönnum og um 500 eru slasaðir. Á laugardag lést fimmtán ára gamall drengur en hann var skotinn í höfuðið af ísraelskum hermanni á föstudag, segir í frétt á mbl.is – og einnig hafi leiðtogi Al-Qaeda, Ayman al-Zawahiri, sent frá sér skilaboð þar sem hann hvatti múslíma til þess að gera árásir á Bandaríkin.
Donald Trump bandaríkjaforseti verður sjálfur ekki viðstaddur opnunina en í hans stað mætir Ivanka Trump dóttir hans ásamt eiginmanni sínum en 800 hundruð gestir verða viðstaddir.
Palestínumenn líta á borgina sem sína höfuðborg líkt og gyðingar og mikil mótmæli eru við landamæragirðingarnar að Ísrael. Aldrei hefur náðs að semja um yfirráð yfir borginni og hafa Ísraelsmenn og Palestínumenn enn ekki gengið frá þeim stærsta hluta viðræðna um mögulegan frið. Palestínumenn líta á austurhluta borgarinnar sem sinn réttmæta hlut.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að í dag sé „stór dagur fyrir Ísrael“. Dagurinn er sögulega táknrænn en 14.maí árið 1948 er stofndagur Ísraelsríkis.
Mótmæli Palestínumanna hófust 30. mars og hafa beinst gegn því að 70 ár eru frá stofnun Ísraelsríkis og hundruð þúsunda Palestínumanna voru hraktir í útlegð.
Hann sagði opnunina bera upp á stofndag Ísraelsríkis, sem Bandaríkjamenn hefðu verið fyrstir til að viðurkenna. Bandaríkjastjórn telji mikilvægt að hafa frumkvæði að því að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels eins og Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði ákveðið í desember.