Tuga tonna álfakirkja flutt um set

Gríðarmikill grjóthnullungur verður hífður upp úr vegstæði nýs Álftanesvegar í Garðahrauni nú undir hádegi þar sem vegurinn liggur framhjá Prýðishverfinu. Steinninn sem er áberandi í landslagi hraunsins verður að sögn vegagerðarmanna settur niður til hliðar við veginn þar sem er að finna aðrar tilkomumiklar steinmyndanir sem eru svipaðar umræddum stein. Þannig sé ætlunin að búa til eina fallega heild sem síðar geti orðið viðkomustaður göngufólks um hraunið. Margir telji að steinninn sé íverustaður álfa, kapellu eða kirkju og að steinmyndanirnar þangað sem "kapellan" verði flutt til sé einnig íverustaður álfa. 
Steinninn er í tvennu lagi og verður hífður þannig, áætlað er að stærri hluti hans sé um 50 tonn en sá minni um 20 tonn.