Tuga prósenta lækkun á matvöru

Finnur Árnason, forstjóri Haga segir verð á innfluttum matvörum geta lækkað um tugi prósenta eftir þær tollabreytingar sem náðst hafa fram í samningum milli íslenskra stjórnvalda og Evópusambandsins.

Samtök iðnaðarins, Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda hafa öll fagnað þessum tímamótum sem eru talin felast í samningnum og þá hefur Alþýðusamband Ísland sagt hann fela í sér augljósan ávinning fyrir almenning í landinu.

Samningurinn tekur til tolla á innfluttum matvörum og rýmkar mjög kvótann á leyfilegu magni á innflutning kjöti og mjólkurvörum, en á móti kemur að íslenskir bændur geta flutt út mun meira magn af lambakjöti, svo dæmi sé tekið, en þeir hafa áður haft leyfi til.

Sindri Sigurgeirssonm formaður Bændasamtakanna segir í Morgunblaðinu í dag að það sé jákvætt að  ændur fái greiðari aðgang að evrópskum markaði fyrir vörur sínar, samtökin hafi löngum talað fyrir því að fella ekki niður tolla einhliða og því beri að fagna tvíhliða samkomulagi sem þessu sem sé báðum til gagns. Hitt sé augljóst að staðan verði verri fyrir sumar greinar og nefnir hann þar alifugla- og svínarækt, en auðvitað sé samningurinn tvíeggja sverð fyrir greinina í heild sinni.