Tryggvi fær milljónir frá illuga

Félagið Taurus hefur fengið 2,1 milljón frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu vegna verkefnisins Nám er vinnandi vegur. Tryggvi Þór Herbertsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á 99 prósenta hlut í fyrirtækinu.

Þetta kemur fram í frétt Stundarinnar.

Þar segir einnig að Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og formaður bæjarráðs Fjarðarbyggðar, eigi eitt prósent í félaginu.

Tryggvi Þór er með doktorsgráðu í hagfræði.

Samkvæmt frétt Stundarinnar er þetta ekki eina verkefnið sem Tryggvi hefur fengið hjá hinu opinbera á kjörtímabilinu. Illugi Gunnarsson er ábyrgur fyrir þessu fé en þann 22. janúar 2014 var Tryggvi ráðinn án auglýsingar sem verkefnisstjóri um framkvæmd höfuðstólslækkunar íbúðalána. Fyrir þau störf fékk hann samtals um 9 milljónir. Bjarni Benediktsson mun hafa verið ábyrgur fyrir því, en Tryggvi Þór hlaut ekki framgang síðast til þingmennsku og hefur síðan notið góðs af ýmsum opinberum verkefnum.

Áður hefur verið fjallað um aðra fyrrverandi þingmenn sem sumir hverjir hafa fengið milljónatugi frá ráðuneytum. Þar hefur mál  Guðfinnu Bjarnadóttur vakið einna mesta athygli eins og sagt er frá í þessari frétt Hringbrautar.