Tryggvi er látinn

Tryggvi Brandr Jóhannsson fæddist á Húsavík 10. apríl 1949. Hann lést á HSN á Húsavík 28. ágúst 2019. Hinn 15. september 1973 kvæntist Tryggvi Guðlaugu Sigmarsdóttur hjúkrunarfræðingi og eignuðust þau þrjú börn. Tryggvi sem alinn var upp á Húsavík hafði mikinn áhuga á stjórnmálum og var áberandi í bæjarpólitíkinni fyrir norðan. Tryggvi var kjörinn í bæjarstjórn árið 1994 fyrir G-listann og svo aftur 1998 fyrir H-lista. Á þeim tíma gegndi hann embætti forseta bæjarstjórnar í átta ár, sinnti formennsku og sat sem aðalmaður í fjölda nefnda. Þá tók hann að sér ýmis embættis- og trúnaðarstörf fyrir sveitarfélagið. Sat hann í bæjarstjórn allt til ársins 2007 en Tryggvi var mikill Samfylkingarmaður. Þá vakti það athygli, eitt síðasta verk Tryggva, þegar hann sneri niður mannanafnanefnd. Greint er frá andláti Tryggva í Morgunblaðinu.

\"\"Árið 2007 tók hann við starfi framkvæmda- og þjónustufulltrúa hjá Norðurþingi sem hann sinnti allt til ársins 2018 er hann fór á eftirlaun. Árið 1987 tók Tryggvi þá ákvörðun að skilja við Bakkus og varð virkur í AA-samtökunum.

Tryggvi sótti mikið í að prófa eitthvað nýtt. Hann lærði esperanto af kassettum í bílnum sínum, tók kaþólska trúárið 2004, fékk sér mótorhjól og lærði á það 2007. Árið 2007 tók hann við starfi framkvæmda- og þjónustufulltrúa hjá Norðurþingi sem hann sinnti allt til ársins 2018 er hann fór á eftirlaun. Árið 1987 tók Tryggvi þá ákvörðun að skilja við Bakkus og varð virkur í AA-samtökunum.

Eitt síðasta prakkarastrikið og sem hann náði glottandi í gegn var að koma skemmtilegri nafnabreytingu í gegnum mannanafnanefnd. Helstu vonbrigðin voru hve auðfús nefndin var á breytinguna.

Tryggvi tók þá upp eftirnafnið Brandr en fyrr á árinu, þegar Tryggvi var að berjast við veikindi og var sem „aktívastur á sterunum“ datt honum í hug að leika sér aðeins við þjóðskrá, líkt og hann lýsir því sjálfur. Vakti það nokkra kátínu þegar hann tilkynnti að hann hefði fengið nafnið Brandr samþykkt og enn frekar þegar hann greindi frá því af hverju hann tók nafnið upp. Sjálfur útskýrði hann það á samskiptamiðlum á þessa leið:

„Ég var af mörgum bekkjarfélögum mínum í barna- og gagnfræðaskóla kallaður Brandur og sumir þeirra nota það enn. Upphaf þess nafns var það að pabbi átti trillu með því nafni. Það þurfti ekki merkileg tilefni til nafngifta í den. Brandr er svo aftur á móti miklu magnaðra afbrigði heldur en Brandur, finnst mér.“

Til að fullkomna brandarann tók hann nafnið upp nú í ár. Tryggvi var mikill húmoristi en líka forvitinn og vilda prófa nýja hluti. Hann lærði esperanto af kassettum í bílnum sínum, tók kaþólska trú árið 2004, fékk sér mótorhjól og lærði á það 2007.

Tryggva var sagður prúðmenni í framgöngu, skarpgreindur, vandvirkur og rökfastur og hafi flutt mál sín af festu á opinberum vettvangi þegar svo bar undir. Þá var hann bókhneigður og vel lesinn. Tryggvi átti auðvelt með að sjá jákvæðu hliðarnar á flestum málum en einn vina hans segir í minningar grein um Tryggva:

„Tryggvi sá jákvæðu hliðar málanna sem kom vel í ljós í sjúkralegunni þegar jafnvel „sóttarsæng“ hans varð í einni ferskeytlunni „fyrirtak“. Þegar ég heimsótti hann á sjúkrahúsið sagðist hann ekki stunda vísnagerð nema þegar honum liði vel, „því ég er ekki harmkvælaskáld,“ bætti hann við og kímdi.“

Þá hafði hann gaman af því að berja saman vísur og sú síðasta sem hann birti á samfélagsmiðlum hljóðar svo:

Nú ég hvíl’ á sóttarsæng
sú er alveg fyrirtak.
Er með hausinn undir væng
ekki er slæmt að liggj’á SAk

Útför Tryggva Brands fór fram í Húsavíkurkirkju í gær.