Samtök atvinnulífsins tilgreina tryggingagjald nú á launaseðlum starfsmanna sinna og hvetja aðra vinnuveitendur, og fyrirtæki sem annast launavinnslu, til að gera slíkt hið sama.
Árið 2017 greiddu vinnuveitendur 685.607 kr. í tryggingagjald með hverjum fullvinnandi starfsmanni með áætluð meðalheildarlaun á almennum vinnumarkaði.
Til að setja það í samhengi samsvarar tryggingagjald fyrirtækis með 14 starfsmenn því að vera með fimmtánda starfsmanninn á launaskrá. Gert er ráð fyrir að gjaldið skili 100 milljörðum króna í ríkissjóð á þessu ári.