Tryggð, ný íslensk kvikmynd undir leikstjórn Ásthildar Kjartansdóttur, verður frumsýnd hérlendis í kvöld. Í gærkvöldi var hún heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg.
Tryggð segir frá Gísellu Dal, sem fær tvær erlendar konur til þess að leigja hjá sér til að ná endum saman. Fyrst um sinn gengur sambúðin vel, en með tímanum fara menningarárekstrar að krauma upp á yfirborðið sem ógna valdi Gísellu, geði hennar og sjálfsmynd.
Myndin er byggð á skáldsögunni Tryggðarpantur eftir Auði Jónsdóttur. Ásthildur Kjartansdóttir leikstýrir og skrifar handritið að Tryggð. Eva Sigurðardóttir framleiðir fyrir hönd Askja Films og Ásthildur framleiðir fyrir hönd Rebella Filmworks. Andri Steinn Guðjónsson klippir myndina, Ásgrímur Guðbjartsson sér um stjórn kvikmyndatöku og Kira Kira semur tónlist. Í aðalhlutverkum eru Elma Lísa Gunnarsdóttir, Enid Mbabazi, Raffaella Brizuela Sigurðardóttir og Claire Harpa Kristinsdóttir
Tryggð er fyrsta leikna kvikmynd Ásthildar Kjartansdóttur í fullri lengd, en hún hefur leikstýrt og skrifað handrit að fjölda stuttmynda og heimildamynda á löngum ferli.
Myndin er sýnd í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói á Akureyri.